Stjórn Styrktarsjóðs BHM hefur samþykkt breytingu á úthlutunarreglum sjóðsins sem fela í sér að frá og með 15. nóvember 2022 verða sjúkradagpeningar greiddir að hámarki í fjóra mánuði í stað sex mánaða. Sjóðfélagar sem sækja um sjúkradagpeninga fyrir kl. 12:00 þann 15. nóvember 2022 eiga rétt í samræmi við reglur eins og þær voru fyrir þann tíma. Breytingin tekur því mið af umsóknardegi.
Sjá nánar í frétt á heimasíðu BHM
Ákvæði kjarasamninga aðildarfélaga BHM um hagvaxtarauka komu til framkvæmda nú um mánaðamótin og gilda frá 1. apríl.
Þetta þýðir að kauptaxtar hækkuðu um 10.500 krónur frá og með 1. apríl. Þau sem eru á kjörum umfram það sem launataxtar kveða á um fá hækkun að lágmarki 7.875 krónur.
Uppfærðar launatöflur verða aðgengilegar á heimasíðum aðildarfélaga BHM á næstu dögum.
Gert er ráð fyrir að þessar hækkanir komi til framkvæmda við útborgun launa 1. maí.
Ekki hægt að bíða eftir kjarasamningum til að leysa mönnunarvanda heilbrigðiskerfisins
Formenn heilbrigðisstétta innan BHM vilja vekja athygli á, í kjölfar viðtals við Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra í kvöldfréttum RÚV þann 28. mars, að ekki þurfi að bíða eftir næstu kjarasamningum til þess að bæta kjör heilbrigðisstétta. Við fögnum orðum Willums um þörfina fyrir að ná góðum kjarasamningum fyrir heilbrigðisstarfsfólk. Það breytir því þó ekki að nauðsynlegt er að setja strax inn mótvægisaðgerðir við langvarandi mönnunarvanda og alvarlegu álagi sem hefur aukist til muna í heimsfaraldri síðustu tveggja ára. Runólfur Pálsson forstjóri Landspítala hefur einnig sagt að engan tíma megi missa til aðgerða í stöðunni eins og hún er í dag. Við tökum heilshugar undir það.
Því köllum við strax eftir aðkomu ríkisins að stofnanasamningum svo unnt sé að leiðrétta og bæta launasetningu og starfsþróun heilbrigðisstarfsfólks. Ekki er hægt að bíða eftir miðlægum kjarasamningum til þess. Þörf er á því að fara strax í kröftugar og markvissar aðgerðir sem stöðva flótta heilbrigðisstarfsfólks úr störfum innan heilbrigðiskerfisins. Samhliða því þarf að hvetja fagmenntað heilbrigðisstarfsstarfsfólk til að snúa aftur til starfa.
Heilbrigðisstéttir innan BHM eru tilbúnar í samtalið strax.
Undir þetta rita:
Félag lífeindafræðinga
Félag íslenskra náttúrufræðinga
Félagsráðgjafafélag Íslands
Félag geislafræðinga
Félag sjúkraþjálfara
Iðjuþjálfafélag Íslands
Ljósmæðrafélag Íslands
Sálfræðingafélag Íslands
Þroskaþjálfafélag Íslands
Nýlegar athugasemdir