Skip to main content

UM SKRIFSTOFUNA

Félög sem eiga aðild að SIGL:

  • Félag sjúkraþjálfara – FS
  • Iðjuþjálfafélag Íslands – IÞI
  • Félag Geislafræðinga – FG
  • Félag lífeindafræðinga – FL

Milli þessara fjögurra félaga var gerður samstarfssamningur um rekstur sameiginlegrar þjónustuskrifstofu SIGL (upphafsstafir félaganna fjögurra).

Samningurinn var undirritaður 30. september 2003. og tók skrifstofan formlega til starfa 1. október sama ár.

Stofnun þjónustuskrifstofunnar átti sér talsverðan aðdraganda og var að tillögu Halldóru Friðjónsdóttur, formanns BHM og Gísla Tryggvasonar, frkv.stj. BHM stofnað til viðræðna milli þessara fjögurra félaga um áramótin 2002/2003. Fljótlega kom í ljós að þau áttu ýmislegt sameiginlegt og fulltrúar þeirra fundu styrk í þessu samstarfi jafnframt því sem leitað var fyrirmyndar hjá núverandi þjónustuskrifstofu fimm BHM félaga, Huggarði, sem hefir reynst hafa marga góða kosti.

Markmiðin voru og eru þau helst:

  • Að hagræða í rekstri á skrifstofu og bæta þjónustu við félagsmenn stéttarfélaganna.
  • Að byggja upp, þróa og viðhalda þekkingu á kjara- og réttindamálum.
  • Að bæta aðgengi félagsmanna og kjörinna fulltrúa að þjónustu og upplýsingum.
  • Að samhæfa krafta stéttarfélaga í skyldum greinum.
  • Að bæta gagna- og skjalavörslu.
  • Að létta störf kjörinna fulltrúa í stjórnum og nefndum.

Vegna breyttra aðstæðna hefur þessum samningi verið breytt tvisvar síðan og eru allir þessir samningar hér fyrir neðan

samstarfssamningur SIGL 30 sep 2003

samstarfssamningur SIGL feb 2012

samstarfssamningur SIGL jan 2013

Umsjón persónuverndarvalkosta

Afar Nauð

Vafrakökur eru nauðsynlegar til að vefsetrið starfi eðlilega.

-

Markaðssetning

Notaðu vafrakökur til að nýta þér markaðssetningarreynslu þína til hins ýtrasta og lesa veraldarvefinn. Allar fyrirætlanir eru að mestu leyti viðeigandi fyrir hvern einstakling og eru jafnframt viðeigandi valkostir fyrir hvern ritstjóra vefseturs og aðra.

-

Synleg Frammistöðu

Vafrakökurnar eru notaðar til að fylgjast með notendasamskiptum og skynja þegar hugsanleg vandkvæði koma upp. Þær hjálpa okkur að bæta þjónustu okkar með því að láta í té greiningargögn um hvernig notendur nota þetta vefsetur.

-